Áform um lagasetningu er varðar frumvarp til laga um samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni undir 15 ára aldri voru nýlega kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Í tilkynningunni segir að með þessum hætti sé verið að bregðast við vaxandi hættu sem börnum og ungmennum stafar af ótímabærri, óheftri og áráttukenndri notkun samfélagsmiðla. HEIMILT AÐ FÁ AÐGANG Á 15. ALDURSÁRI Verði frumvarpið samþykkt verður börnum undir 15 ára aldri meinaður aðgangur að samfélagsmiðlum fram til 1. janúar það ár sem barnið nær 15 ára aldri. Ekki er gert ráð fyrir því að börn hljóti refsingu verði brotið gegn reglunum heldur verður þetta sett fram sem almennt verndarákvæði.Í tilkynningu ráðuneytisins segir að þegar hafi verið haft samráð við börn, ungmenni og ýmsa hagaðila vegna málsins.„Í því samráði hefur komið fram