<div class="clearfix text-formatted field field--name-body field--type-text-with-summary field--label-hidden field__item"><p>Tryggvi Hrafn Haraldsson mun ganga í raðir ÍA í haust þegar samningur hans við Val er á enda. Um þetta hefur verið samið. </p><p> Möguleiki er þó á því að Valur selji Tryggva á næstu dögum en Skagamenn hefðu áhuga á að fá hann fyrr. Valur og Tryggvi ræddu saman um nýjan samning en samkvæmt heimildum 433.is á Hlíðarenda voru Valsarar ekki tilbúnir að borga sömu laun og Skagamenn. </p></div>