Íslandsmeistarar Víkings halda áfram að raka inn milljónum með mögnuðum árangri í Evrópukeppnum. Þeir komust áfram í 2. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar með því að slá út Ungverjalandsmeistara ETO í gær og tryggðu sér um leið um það bil 107 milljónir króna, til viðbótar við verðlaunaféð sem þegar var tryggt.