Anutin Charnvirakul, forsætisráðherra Taílands, segir að skemmtistaðir sem starfi ekki í samræmi við lög og reglur eigi ekki rétt á sér og boðar að eigandi bars sem brann um helgina verði ákærður. Ljóst er að minnst 32 fórust í eldsvoða á Rong Beer Na Lad Phrao, vinsælum bar og veitingastað. Staðurinn var ekki með leyfi til skemmtanahalda með lifandi tónlist. Skrifstofa forsætisráðherrans birti í gær myndband af heimsókn Anutin sem ræddi við sérfræðinga og björgunarmenn sem voru að störfum í rústum staðarins. Einn þeirra benti á að svo virtist sem aðeins tveir útgangar hefðu verið ólæstir. Annar þeirra var merktur sem starfsmannaaðgangur og því lá ekki í augum uppi fyrir fólki að það kæmist þar út. Þriðji útgangurinn var læstur og því komst fólk ekki út um hann.Anutin boðaði úttekt á skemm