Árásir víða í Mið-Austurlöndum í nótt

Árásir hafa nú staðið yfir á fimmta sólahring í þessari lotu stríðsins. Loftvarnarkerfi Jórdana skaut niður þrjár meðaldrægar skotflaugar í nótt, sem jórdanski herinn segir að hafi verið skotið frá Íran. Bandaríkjamenn gerðu tugi árása við Hormússund og við Íransströnd í nótt. Ekki hefur verið greint frá manntjóni eða eyðileggingu.Íranski byltingarvörðurinn segist hafa gert árásir á fimmta flota bandaríska sjóhersins í Barein í nótt. Í tilkynningu frá byltingarverðinum sem greint var frá á írönsku ríkissjónvarpsstöðinnir IRIB kom fram að árásirnar hefðu verið á hernaðarlega innviði, vörugeymslur og eldsneytisbirgðastöð fimmta flotans. Þá segist byltingarvörðurinn hafa gert árásir á Al-Azraq herstöðina í Jórdaníu og á Mina Abdullah, bandaríska herstöð í Kúveit.Bandaríski herinn gerði einnig
Árásir víða í Mið-Austurlöndum í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd