Gular viðvaranir norðvestantil og á miðhálendinu

Suðvestanátt setur mark sitt á norðvestanvert landið og miðhálendið í dag með hvössum vindi sem gæti valdið vandræðum fyrir bílstjóra á farartækjum sem taka á sig vind. Í hviðum getur vindurinn farið í 30 metra á sekúndu og því reynst ferðalöngum hættulegur.Minni vindur er annars staðar og það dregur úr vindi með kvöldinu. Veðurspáin er svohljóðandi:Suðvestlæg átt, víða 13-20 m/s norðvestantil, annars 8-15, en dregur úr vindi með kvöldinu. Dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum fyrir austan. Hiti 11 til 26 stig, hlýjast á Austurlandi.Suðvestlæg átt, 5-13 m/s á morgun, skýjað á vestanverðu landinu og sums staðar súld, en víða léttskýjað eystra og kólnar lítið eitt.
Gular viðvaranir norðvestantil og á miðhálendinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd