Hið alræmda Alcatraz-fangelsi á samnefndri eyju.EPA / JOHN G. MABANGLOEinn er látinn og tveggja er saknað eftir að lítil skemmtisnekkja með 19 farþega um borð hvolfdi nærri Alcatraz, fyrrum fangelsi og núverandi ferðamannastað á San Francisco-flóa í Bandaríkjunum í gær.Neyðarkall barst frá bátnum um klukkan hálf fjögur síðdegis að staðartíma en þá var báturinn um 550 metra frá Alcatraz. Báturinn var á hvolfi þegar björgunarfólk kom á vettvang og 16 farþegum var bjargað.Leitað verður áfram að tveimur farþegum sem enn er saknað. Ekki liggur fyrir hvort farþegar og áhöfn snekkjunnar hafi verið á leið til Alcatraz þegar slysið varð en báturinn var í einkaeign og frá Stockton í Kaliforníu.