Bresk stjórnvöld vilja loka fyrir samfélagsmiðlaaðgang ungmenna á næturna

Bresk stjórnvöld kynntu í dag reglur sem miða að því að takmarka notkun samfélagsmiðla 16 og 17 ára ungmenna.Með tilkomu reglnanna verður lokað fyrir aðgang ungmennanna að samfélagsmiðlum á borð við Instagram og Facebook á milli miðnættis og sex á morgnana.Í síðasta mánuði tilkynntu stjórnvöld í Bretlandi að börnum undir 16 ára yrði bannað að nota samfélagsmiðla frá og með ársbyrjun 2027.Liz Kendall, tækniráðherra Bretlands, segir markmiðið vera að hlífa ungmennum við ávanabindandi eiginleikum samfélagsmiðla sem haft geti neikvæð áhrif á líðan þeirra. Hún segir reglurnar meðal annars eiga að hjálpa þeim að sofa betur, einbeita sér í skólanum og að verja meiri tíma með fjölskyldu og vinum.Félagasamtök sem vinna að réttindum barna hafa að mestu tekið vel í breytingarnar. Þó hafa einhver þeir
Bresk stjórnvöld vilja loka fyrir samfélagsmiðlaaðgang ungmenna á næturna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd