Grunur leikur á að Bólivíumenn hafi verið ginntir til Rússlands á fölskum forsendum

Ríkissaksóknari Bólivíu Roger Mariaca hefur hafið rannsókn á því hvort bólivískir ríkisborgarar hafi verið ginntir til Rússlands á fölskum forsendum en síðan verið sendir til að berjast á víglínunni í Úkraínu.Myndskeið var nýverið í dreifingu á samfélagsmiðlum af bólivískum ríkisborgara, Jose Maria Soleto, í rússneskum herbúningi. Svo virðist sem myndskeiðið sé tekið á átakasvæði en í því lýsir Solento lífinu í stríði og segir að dagarnir séu drifnir áfram af adrenalíni.Með Soleto í myndskeiðinu er frændi hans og tveir aðrir menn frá Perú og Kólumbíu. Eiginkona Soleto segir að hann hafi fallið í átökum í Úkraínu en honum hafi verið boðnir 16.000 dollarar til að fara til Rússlands í apríl.Yfirvöld í Perú og Kólumbíu rannsaka einnig meintan ólöglegan flutning á ríkisborgurum sínum til Úkraín
Grunur leikur á að Bólivíumenn hafi verið ginntir til Rússlands á fölskum forsendum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd