Hátt í 20 milljónir barna í heiminum eru ekki nægilega bólusett og 13,5 milljónir þeirra eru alls ekkert bólusett. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin er í samstarfi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og UNICEF. Hlutfallið hækkar aðeins frá síðasta ári en enn þá er langt í land að ná til allra barna.Árið 2019 höfðu 91% barna aðgang að fyrsta skammti bóluefnis gegn kíghósta, stífkrampa og barnaveiki. Þetta hlutfall lækkaði verulega næstu tvö árin vegna aukinnar tortryggni gagnvart bóluefnum í heimsfaraldri og árið 2021 var það komið niður í 86%. Síðan þá hefur það farið upp á við á ný og er 90% núna. 85% hafa aðgang að öllum þremur skömmtum bóluefnisins og það hlutfall hækkar einnig lítillega.Staðan er misjöfn eftir landssvæðum og jafnvel löndum. Minnst er aðgengi barna að fyrsta skammti gru