Sex létust í eldsvoða í Brussel

Sex manns létust í eldsvoða sem kviknaði á byggingarsvæði í miðborg Brussel í gærmorgun.Eldurinn kom upp í Oxy-turninum sem er enn í byggingu. Hann stendur skammt frá Grand Place-torginu í miðborg Brussel. Gert er ráð fyrir að í húsinu verði íbúðir, hótel, veitingastaðir og barir þegar framkvæmdum lýkur. TVÆR LYFTUR VORU FASTAR Slökkvilið var kallað á vettvang um klukkan átta í gærmorgun að staðartíma. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins en við leit kom í ljós að reykur og eldur höfðu borist í lyftustokka þar sem tvær lyftur voru fastar.Björgunaraðgerðir stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. Þegar slökkviliðsmenn opnuðu aðra lyftuna fundust þar sex látnir.Philippe Close, borgarstjóri Brussel, var viðstaddur frá morgni. Filippus Belgíukonungur og Bart de Wever forsætisráðherra mættu
Sex létust í eldsvoða í Brussel

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd