Fyrri hluti sumarsins á meginlandi Spánar hefur verið sá heitasti frá því að mælingar hófust árið 1961, samkvæmt spænsku veðurstofunni, AEMET. Tvær öflugar hitabylgjur hafa gengið yfir landið frá byrjun júní og hitinn verið langt yfir meðallagi nær alla daga sumarsins hingað til.Meðalhiti á meginlandi Spánar frá 1. júní til 15. júlí mældist 24,5°C, sem er 3,3 gráðum hærra en meðaltal sama tímabils á árunum 1991 til 2020. Að sögn talsmanns AEMET, Rubén del Campo, munu lokatölur morgundagsins líklega ekki breyta heildarmyndinni. LOFTSLAGSBREYTINGAR LENGI HITATÍMABIL Vísindamenn telja loftslagsbreytingar af mannavöldum lengja hitatímabil, auka styrk hitabylgna og gera þær tíðari. Þá þorna gróðursvæði hraðar, sem eykur hættu á gróðureldum.Mikil hitabylgja í lok júní náði víða yfir Evrópu og