Brotist var inn í Hreppslaug á Hvanneyri í dag. Lítið var tekið af þýfi en talsverðar skemmdir urðu á aðgangshurð hússins við laugina. Lögreglan á Vesturlandi rannsakar innbrotið.„Við erum nýlega búin að byggja þetta glæsilega hús og aðstaðan er orðin mjög flott. Þannig að það er mjög sárt fyrir ungmennafélagið að hafa lent í þessu,“ segir Kristján Guðmundsson, formaður ungmennafélagsins Íslendings sem á og rekur Hreppslaug.Sem betur fer sé lítið af verðmætum inni í húsinu og því hafi lítið tjón hlotist af innbrotinu, að undanskildum skemmdum sem unnar voru á hurðinni. Með hjálp nærsamfélagsins tókst að opna aftur síðdegis.„Við eigum góða að sem voru fljótir að koma að kippa þessu í liðinn og gátum opnað aftur seinnipartinn fyrir gesti. Þeir biðu í örvæntingu eftir að komast í laugina. Þan