Formaður Byggiðnar, félags byggingarmanna, sagði í kvöldfréttum sjónvarps í gær að brögð væru að því að ófaglærðir væru ráðnir í stað faglærðra iðnaðarmanna í byggingariðnaði. Því fylgdi meðal annars fleiri gallar í byggingum.Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort fylgni sé á milli fjölda ófaglærðra í byggingariðnaði og fjölda galla í nýbyggingum. Teymisstjóri hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun bindur vonir við að breytt byggingareftirlit bæti úr því.„Við höfum engin töluleg gögn yfir það, hvert hlutfallið er, en ef þróunin er að verða sú að faglærðum er að fækka, þá deilum við auðvitað áhyggjum af því,“ segir Jörundur Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits mannvirkja hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. EFTIRLIT MIKILVÆGARA EFTIR ÞVÍ SEM FAGLÆRÐUM FÆKKAR Jörundur segir