<div class="clearfix text-formatted field field--name-body field--type-text-with-summary field--label-hidden field__item"><h3>Læknar og slökkviliðsyfirvöld í Bandaríkjunum vara nú foreldra við hættulegri samfélagsmiðlaáskorun sem tengist hinum vinsælu leikföngum NeeDoh Cube.</h3><p>Samkvæmt umfjöllun VT.co hafa nokkur börn hlotið alvarleg brunasár eftir að hafa sett leikföngin í örbylgjuofn í þeirri trú að þau yrðu mýkri og skemmtilegri í notkun.</p><p>Leikföngin, sem eru framleidd af fyrirtækinu Schylling, eru mjúk þrýstileikföng sem eiga að draga úr streitu og örva skynjun.</p></div>