Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum.