Vegfarendur hvattir til að sýna aðgát vegna hvassviðris

Veðurstofan varar við hvassri sunnanátt víða um land í nótt og á morgun. Búist er við sterkum vindhviðum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og norðanverðu miðhálendinu og hafa gular viðvaranir verið gefnar út.Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að aðstæður geti orðið varhugaverðar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og eru vegfarendur hvattir til að fylgjast með og meta aðstæður áður en lagt er af stað.Á morgun taka gular viðvaranir gildi víða um land.Veðurstofa Íslands
Vegfarendur hvattir til að sýna aðgát vegna hvassviðris

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd