Bandarísk yfirvöld hafa nú hafið endurgreiðslur á innflutningstollum sem síðar voru felldir úr gildi. Lauf Cycles er meðal fyrirtækja sem hafa fengið tolla endurgreidda. Framkvæmdastjóri segir endurgreiðsluna einungis bæta hluta tjónsins. Yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins segir fleiri fyrirtæki hafa krafist endurgreiðslu.