Ísland er ekki í nokkrum skilningi stórveldi í evrópskum sjávarútvegi. Holland er það hins vegar. Tekjur fjögurra stærstu íslensku sjávarútvegsfyrirtækjanna samanlagðar eru sambærilegar við það stærsta í Hollandi. Hollenski forsætisráðherrann útilokar eins og fleiri ráðamenn í álfunni að Ísland fái undanþágu frá hinni sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB.