<p>Víkingur sló ungverska liðið Gyor úr leik í 1. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. </p><p>Daníel Hafsteinsson, sem var frábær í leiknum, kom Víkingi yfir eftir hornspyrnu á 34. mínútu. Við tók hins vegar góður kafli hjá heimamönnum sem komust yfir fyrir hlé með marki Milan Vitalis af vítapunktinum og sjálfsmarki Sveins Gísla Þorkelssonar.</p><p>Víkingur kom af krafti inn í seinni hálfleik og þegar hann var tíu mínútna gamalt átti Daníel frábært skot sem hafnaði í netinu. Svo virðist sem Gylfi Þór Sigurðsson hafi komið snertingu á boltann á leiðinni á markið. </p>