Vinnuvélar og tæki sem keypt eru frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, og flutt hingað til lands, standast ekki öryggiskröfur.Netverslunin Ali Express er með vinnuvélar og tæki til sölu á mun lægra verði en gengur og gerist hérlendis.Vinnueftirlitið varar þó við kaupum og hefur stöðvað innflutning á fjölda vinnuvéla sem uppfylla ekki öryggiskröfur.Lögmaður hóps manna, sem hefur orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna aðgerða Vinnueftirlitsins, segir mennina beitta ólögmætum viðskiptahindrunum. VERÐMUNURINN MIKILL EN ÖRYGGIÐ MIKILVÆGARA Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, segir að í 350 tilfellum hafi Vinnueftirlitið óskað eftir frekari gögnum um vélar sem hafa verið fluttar inn til landsins.Af þeim 350 málum hafa 40 mál verið skoðuð nánar.„Og við höfum banna