Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur við að innheimta tuttugu prósenta toll af öllum varningi sem siglir um Hormússund. Þetta er enn ein kúvendingin í málefnum Hormússunds og stríðinu gegn Íran. Innan við sólarhringur er liðinn frá því Trump lýsti því yfir að hann myndi krefjast tollsins af allri umferð um sundið í skiptum fyrir að tryggja öryggi skipa sem sigla þar um.Nú segist forsetinn tilbúinn að fella niður tollinn gegn því að Arabaríki fjárfesti í Bandaríkjunum. „Ég kann ekki við tolla sem fyrirbæri.“ sagði Trump en bætti við að það væri ósanngjarnt að Bandaríkin sæju um að vernda öll skip sem sigla um sundið.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fundaði með Ali al-Zaidi, forsætisráðherra Íraks, í Hvíta húsinu í dag. Stríðið í nágrannaríkinu Íran var þar til umræðu.AP / Alex B