Kanadíska stórstjarnan Hudson Williams var að þrotum komin í París á dögunum eftir að hafa verið eltur á röndum af mönnum sem vinna við það að selja eiginhandaráritanir. Einn mannanna tók Williams upp á myndband sem hefur farið sem eldur um sinu á Internetinu.