Fyrirhuguðum olíuborunum bandarísks olíufélags á Grænlandi mótmælt

Fyrirætlanir bandaríska olíufyrirtækisins Greenland Energy Company um að bora fyrir olíu rétt við bæinn Ittoqqortoormiit á Austur-Grænlandi hafa vakið töluverða úlfúð meðal Grænlendinga. Bæjaryfirvöld þar óttast að þetta sé gert til að ráðskast með íbúa og setja það í samhengi við ítrekuð ummæli forseta Bandaríkjanna um að þau verði að ráða yfir Grænlandi.Borunin er áætluð á svæði sem heitir Nunap Qeqqa en gengur líka undir nafninu Jameson Land. Það er í bakgarðinum á bænum Ittoqqortoormiit. Greenland Energy Company fékk, ásamt breska olíufyrirtækinu 80 Mile, leyfi til rannsókna og nýtingar þar 2014 frá grænlensku landstjórninni. Það þýðir að fyrirtækin geta nýtt olíu þaðan ef hún finnst í nægjanlegu magni. Grænlendingar ákváðu 2021 að hætta að gefa út leyfi til leitar á olíu og gasi.Fyrir
Fyrirhuguðum olíuborunum bandarísks olíufélags á Grænlandi mótmælt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd