Streymisveitur boða ekki endalok íslenskrar tónlistarútgáfu

Íslenskt tónlistarfólk stendur betur í sölu á áþreifanlegri tónlist, vínyl og geisladiskum, en í streymi samkvæmt gögnum frá Félagi hljómplötuframleiðenda. Um fimmtungur, 20,5%, af heildarveltu á tónlistarstreymisveitum hérlendis fer til innlendrar útgáfu. Hlutdeild íslenskrar tónlistar af sölu á vínylplötum og geisladiskum er hins vegar nær þriðjungi, 34,2%.Það er vert að nefna að hér er átt við innlenda tónlistarútgáfu en ekki alla tónlist eftir Íslendinga. Fjöldi tónlistarfólks, sérstaklega það sem hefur náð vinsældum víðar en á Íslandi, gefur tónlist sína út erlendis og má líta á sem alþjóðlega. Þær útgáfur flokkast með erlendri framleiðslu í þessum tölum.Jóhann Ágúst Jóhannsson, plötuútgefandi og eigandi Reykjavík Record Shop, ræddi stöðu íslenskrar tónlistarútgáfu í Fram undan á Rás
Streymisveitur boða ekki endalok íslenskrar tónlistarútgáfu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd