Skipverjar í Dettifossmáli játa sök að hluta

Skipverjarnir tveir í Dettifossmálinu svokallaða, þar sem rúmlega 14 tonnum af amfetamínbasa var smyglað í flutningaskipi Eimskips í apríl, játa sök að hluta.Þetta staðfestir Stefán Karl Kristjánsson, verjandi eins sakborningsins. Málið var þingfest í dag.Fjórir eru ákærðir, tveir sem taldir eru hafa skipulagt smyglið og tveir skipverjar sem voru starfsmenn Eimskips þegar smyglið kom upp.Skipverjarnir segjast lítið sem ekkert hafa komið að skipulagningu smyglsins, að því er fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurði. Þeir neita að hafa átt í samverknaði með skipuleggjendum.Allir sakborningarnir sátu þingfestinguna í gegnum fjarfundarbúnað.Skipuleggjendurnir tveir, Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepa, neituðu sök að mestu.Aðalmeðferð verður í Héraðsdómi Reykjavíkur 24. til 26. ágúst að sögn Stef
Skipverjar í Dettifossmáli játa sök að hluta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd