Starfsmenn og notendur endurhæfingarþjónustunnar á Kristnesi í Eyjafirði eru ósáttir við að starfsemin verði flutt til Akureyrar. Óvissa ríkir um framtíðarnýtingu á húsnæðinu á Kristnesi þar sem mikilla viðgerða er þörf á ónýtum húsakosti.„Fyrst og fremst finnst mér bara galið að færa endurhæfinguna inn til Akureyrar. Þarna er heilunarmáttur umhverfisins gríðarlegur og búið að byggja sundlaug og allt til alls. Mér finnst alveg einbúið að gera við þetta hús og halda starfseminni áfram,“ segir María Pálsdóttir, ábyrgðarkona undirskriftalistans á Ísland.is.Ríflega 2.200 einstaklingar hafa skrifað undir hjá Maríu. Markmiðið er að ná 5.000 undirskriftum til að ná eyrum stjórnvalda.„Ég reyni kannski að safna liði. Nú er ég búinn að vera í sambandi við fyrrverandi endurhæfingarlækni þarna á Krist