Efstu fjögur liðin á heimslista FIFA eru liðin sem leika til undanúrslita á heimsmeistaramótinu í fótbolta í ár. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem svo er. Það er hins vegar ekki alveg hrein tilviljun.Í nýjustu útgáfu listans eru heimsmeistarar Argentínu á toppi heimslistans, þar á eftir koma Evrópumeistarar Spánar, svo Frakkar og Englendingar. Frakkland og Spánn mætast í fyrri undanúrslitaleik mótsins í Dallas í kvöld og annað kvöld mætast svo England og Argentína í Atlanta.Ekki nóg með að þetta sé í fyrsta skipti sem efstu fjögur lið styrkleikalistans eru í undanúrslitunum heldur er þetta í fyrsta skipti sem öll liðin í undanúrslitunum eru í efstu tíu sætum listans.Áður en dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramótið ákvað FIFA að raða því þannig niður að efstu fjögur lið heimslistans