Skýr merki eru um samdrátt í byggingariðnaðinum hvert sem litið er, segir Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Velta, fjöldi starfsfólks innan geirans, innflutningur á byggingarefni og önnur merki um umsvif bendi öll til samdráttar.HMS hefur áhyggjur af samdrættinum, þótt hann sé ekki mikill enn sem komið er, segir Jónas. Hann segir helstu afleiðingu samdráttarins vera atvinnuleysi.„Enn sem komið er er mældur samdrátturinn ekki mikill. Helsta áhyggjuefnið er mögulega atvinnuleysið. Atvinnuleysi í byggingargeiranum hefur farið vaxandi með nokkuð stöðugum hætti á síðustu þremur árum og hraðar heldur en atvinnuleysi annars staðar í hagkerfinu,“ segir Jónas. ÁHRIF Á FASTEIGNAMARKAÐ TAKA TÍMA Hann segir taka tíma fyrir breytingar í byggingariðnaðinum að haf