Mögulega verðmætur fjársjóður í næstu fjöru

Ambur eða ambergris er vaxkenndur klumpur sem verður til í meltingarvegi búrhvala, sem þeir síðan æla eða skyrpa út úr sér. Klumpinn getur síðan rekið um hafið þangað til hann nær ströndu.Nýverið auglýsti eigandi kaupumgull.is eftir að fá keypt ambur og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Tæplega 50 athugasemdir hafa borist honum og fólk hefur sýnt þessu mikinn áhuga.„Það eru nokkrir dagar síðan ég póstaði þessu og viðbrögðin ofsalega mikil. Ég hélt kannski að einhver einn myndi hafa samband en það eru margir búnir að hafa samband. Ég sé það bara að fullt af fólki hefur haft samband og það er að ganga fjörur. Fólk er með hunda sem það vill koma með að þefa af efninu og fara svo að leita. Þetta gæti orðið ábótasamur göngutúr en ef ekkert finnst er þetta bara góð hreyfing,“ segir Sverrir Eirí
Mögulega verðmætur fjársjóður í næstu fjöru

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd