Landamæravörslu hætt milli Spánar og Gíbraltar á morgun

Fulltrúar Bretlands og Evrópusambandsins undirrituðu í dag samning um að afnema landamæraeftirlit milli Spánar og Gíbraltar. Þetta gerir það að verkum að fólk getur ferðast á milli að vild og þúsundir manna sem sækja vinnu yfir landamærin þurfa ekki að fara í gegnum tafsamt landamæraeftirlit.Gíbraltar lýtur breskri stjórn en hefur þó sjálfstjórn. Landamærin hafa verið til staðar síðan árið 1908. Árið 1969 samþykkti Gíbraltar í þjóðaratkvæðagreiðslu að vera áfram hluti af Bretlandi, sem varð til þess að Franco hershöfðingi, þáverandi einræðisherra Spánar, lokaði landamærunum að Gíbraltar. Þau voru opnuð aftur 13 árum síðar eftir dauða Francos. Síðan þá hefur verið landamæraeftirlit þar og hafa iðulega myndast þar langar raðir á háannatíma þegar fólk fer til og frá vinnu.Mikil óvissa var um
Landamæravörslu hætt milli Spánar og Gíbraltar á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd