Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir stéttarfélagið lengi hafa barist fyrir því að tekið verði á vandamálum sem plagi ræstingageirann. Hún segir stórt framfaraskref stigið með nýjum drögum að viðmiðum fyrir ræstingarútboð ríkisins sem fjármála- og efnahagsráðuneytið vann í samráði við Eflingu.Í nýj viðmiðunum er meðal annars kveðið á um að ríkið megi segja upp ræstingaþjónustu komi í ljós að brotið sé á réttindum starfsfólks og að gerð verði krafa um viðurkennda og gagnsæja uppmælingu á verkinu. Þá er fyrirtækjum sem ríkið semur við gert að skrifa undir yfirlýsingu um að réttur starfsfólks verði virtur. ÚTBOÐ RÍKISINS STÓR HLUTI VANDAMÁLSINS „Þetta eru öll atriði sem skipta alveg rosalega miklu máli til að koma þessum geira, ræstingageiranum, á stað sem við öll sem byggjum þe