Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði tvo menn fyrir helgi af ákæru um að hafa reynt að skipta fölsuðum seðlum í banka. Mennirnir mættu með það sem virtust vera fjórir 100 dollara seðlar en reyndust vera gervipeningar.Seðlarnir voru ekki sannfærandi fölsun. Þeir voru allir með sama raðnúmerið, á þá vantaði öryggisatriði sem eru á raunverulegum seðlum og loks stóð á þeim „USE FOR JOSS PAPER ONY“. Hið síðastnefnda er vísun í gervipeninga sem framleiddir eru í Kína, seldir í bunkum og gjarnan brenndir við athafnir á borð við jarðarfarir og hátíðir.Þar sem ætti að standa „The United States of America“ á löglegum gjaldmiðli stóð „ABODE OF THE DEAD BANK“.Mennirnir mættu ásamt konu í banka í Kópavogi 4. júlí í fyrra. Þetta voru ungur maður, afi hans og dóttir eldri mannsins. Gjaldkeranum fannst áferð p