Hvað borðar Erling Haaland?

„Hann þarf alveg sex þúsund hitaeiningar á dag, sem er rúmlega helmingi meira en venjulegur karlmaður,“ segir Albert Eiríksson, matreiðslumaður og matarbloggari, sem hefur skoðað mataræði knattspyrnumannsins Erlings Haaland upp á síðkastið.Haaland hefur unnið hug og hjörtu heims með frammistöðu sinni á HM í Bandaríkjunum, ekki eingöngu með afrekum sínum á vellinum heldur einnig persónuleika og stíl. Mataræði Haaland vekur líka athygli.„Hann borðar nautalifur, borðar mikið af hjörtum. Þetta er spennandi og innmatur er stútfullur af góðum næringarefnum og prótínum,“ segir Albert sem nefnir að Haaland byggi mataræði sitt á alvöru mat, eggjum, kjöti, fiski, kartöflum, góðri fitu og norska brúnostinum.Albert Eiríksson fór yfir mataræði afreksmannsins Erlings Haaland í Fram undan á Rás 2.
Hvað borðar Erling Haaland?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd