Ákærður vegna andláts tveggja í umferðarslysi

Ökumaður bíls sem lenti í umferðarslysi á Suðurlandsvegi 2024 hefur verið ákærður fyrir að valda dauða tveggja farþega annars bíls af gáleysi.Ökumaðurinn ók, samkvæmt ákæru, of hratt miðað við aðstæður, sýndi ekki nægilega aðgæslu og varúð á hálum vegi og hafði ekki fullt vald á bílnum. Afleiðingarnar voru þær að hann missti stjórn á bílnum sem fór yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði framan á bíl sem var að koma úr annarri átt. Tveir farþegar þess bíls létust af fjölverkum sem þeir hlutu í slysinu og ökumaður hans slasaðist.Ökumaðurinn er ákærður fyrir brot á ákvæðum hegningarlaga sem kveða á um að refsa skuli einstaklingi ef gáleysi hans verður til þess að einhver lætur lífið. Hann er einnig ákærður fyrir brot á ákvæðum umferðarlaga sem kveða á um hvernig ökumenn skuli haga akstri sínum
Ákærður vegna andláts tveggja í umferðarslysi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd