Fjórir leikmenn verða í banni í komandi umferð í Bestu deildinni eftir að þrír leikmenn fengu sitt fjórða gula spjald á tímabilinu í liðinni umferð. Það eru þeir Jakob Franz Pálsson (Valur), Ástbjörn Þórðarson (KR) og Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki). Fyrir var Hólmar Örn Eyjólfsson kominn í bann, afplánar seinni leikinn af tveggja leikja banninu í næstu umferð.