Ákærður fyrir að byrla og nauðga fjórtán konum

Tæplega sjötugur karlmaður hefur verið ákærður í Þýskalandi fyrir að byrla og nauðga fjórtán konum. Hann tók kynferðisbrotin upp. Engin kvennanna hafði vitneskju um kynferðisbrotin sem komust upp eftir að lögregla gerði húsleit á heimili mannsins í Berlín. Þar fundust minnislyklar með fjölda myndskeiða af kynferðisbrotum. Maðurinn er sagður hafa mælt sér mót við konurnar í gegnum stefnumótasíður. Borin hafa verið kennsl á 58 konur við rannsókn málsins. Maðurinn er ákærður fyrir 22 nauðganir á fjórtán konum.
Ákærður fyrir að byrla og nauðga fjórtán konum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd