Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, skaut föstum skotum á Reykjavíkurborg eftir leik liðsins gegn ETO Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku. Elías Már Ómarsson sleit krossband í leiknum eftir að hafa fest sig í grasinu. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, leikmaður kvennaliðs Víkings, sleit krossband á vellinum í síðasta mánuði og þá lenti liðsfélagi hennar, Shaina Ashouri, í því sama í september í fyrra. Sölvi sagði í viðtali eftir leikinn í gær að honum þætti ekki boðlegt að liðið byði upp á grasið sem er á Víkingsvelli. „Mér finnst að Reykjavíkurborg þurfi aðeins að fara rífa sig upp og hjálpa félögum og gera betur í þessum málum,“ sagði Sölvi meðal annars.