Gluggi flugvélar Ryanair, sem flaug frá Þessalóníku í Grikklandi til München í Þýskalandi síðastliðinn föstudag, brotnaði í háloftunum þegar vélarhluti brotnaði af og skaust í vélina. Maður, sem sat við umræddan glugga, sogaðist hálfur úr vélinni, en var sem betur fer spenntur í belti.