Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lögmenn hans og yfirmenn dómsmálaráðuneytisins reyndu að nota dómstóla sem yfirvarp til að ljá gjörðum sínum lögmæti, sagði alríkisdómari í Bandaríkjunum í úrskurði um málaferli Trumps gegn skattinum.Trump krafði skattinn um 10 milljarða dollara í bætur vegna leka á upplýsingum um skattaframtöl hans. Dómsmálaráðuneytið, sem heyrir undir Trump, samdi við hann um lok málsins. Setja átti upp sjóð til stuðnings fólki sem hann segir ríkið hafa brotið á og um að Trump og fjölskylda hans fengju friðhelgi frá rannsóknum skattsins á skattaskilum þeirra.Dómarinn Kathleen M. Kennedy, sem var skipuð af Barack Obama, forvera Trumps í embætti, sagði ljóst af staðreyndum málsins að allir sem komu að því hefðu átt sameiginlegra hagsmuna að gæta.„Þetta snerist aldrei um