Aðildarviðræður í hámæli í Brussel

Nýtt skref var tekið í aðildarviðræðum Úkraínu og Evrópusambandsins í Brussel í morgun, þar sem samþykkt var að opna kafla um utanríkis- og öryggismál.Fulltrúar þriggja annarra umsóknarríkja eru einnig í Brussel. Til stendur að opna sömu kafla í viðræðum við Moldóvu, nokkrum köflum verður lokað í viðræðum við Albaníu, og það sama stendur til með Svartfjallaland, sem komið er hvað lengst í aðildarferlinu.Írar fara nú með formennsku í ráðherraráði ESB og stýra því þessum viðræðum.„Nú þegar við erum við það að loka helmingnum af öllum samningsköflum með Svartfjallalandi, þá höfum við trú á því að viðræðunum við Svartfellinga geti verið lokið fyrir áramót,“ sagði Thomas Byrne, Evrópumálaráðherra Írlands í morgun.
Aðildarviðræður í hámæli í Brussel

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd