Nú er ljóst að í það minnsta 30 fórust í eldsvoða á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands, í fyrrinótt. Eldsvoðinn er sá versti í landinu í nærri 20 ár. 24 eru enn í lífshættu eftir brunann.Enn er ekki vitað hvernig eldurinn kviknaði og hvers vegna hann reyndist svo mannskæður. Rannsakendur hafa skoðað vettvanginn til að leita upptakanna og finna skýringar. Yfirvöld kanna einnig hvort rekstur barsins hafi verið í samræmi við leyfi.Fjöldi fólks bíður enn í óvissu um örlög ástvina sinna sem ekki hefur tekist að hafa upp á eftir eldsvoðann. Ekki hafa verið borin kennsl á þrjú lík.Starfsmenn viðbragðssveita á vettvangi.EPA / RUNGROJ YONGRIT