Strætó hækkar verð í annað sinn á árinu

Tímabilskort í Strætó hækka um 3,45% í verði á fimmtudag. Þetta er önnur hækkun ársins og hafa kortin nú hækkað um 7,2% á einu ári.Verð á 30 daga korti hækkar úr 11.600 kr. í 12.000 kr. og árskort fullorðinna hækkar úr 116.000 kr. í 120.000 kr. Stakt fargjald er óbreytt, 690 kr. fyrir fullorðna.Ungmenni og aldraðir fá áfram helmingsafslátt og öryrkjar 70% afslátt og hækka kortin því í sama hlutfalli.Í tilkynningu frá Strætó segir að ákvörðun um gjaldskrárhækkun sé í samræmi við stefnu fyrirtækisins um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun vísitölu neysluverðs. Gjaldskráin sé endurskoðuð tvisvar á ári.Gjaldskrá Strætó var síðast hækkuð í janúar. Þá hækkuðu stök fargjöld um 3% en tímabilskort um 3,6%.Í viðtali við Morgunblaðið af því tilefni kom fram í máli Jóhannesar Svavars Rúnarssonar,
Strætó hækkar verð í annað sinn á árinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd