„Ég fór frá því að hafa búið í sama húsinu alla ævi yfir í að flytja til Mílanó án þess að þekkja nokkurn, en borgin varð furðufljótt kunnugleg,“ segir hin 23 ára gamla Fanney Birna fatahönnunarnemi í Mílanó sem var að fá spennandi atvinnutækifæri í Madríd. Blaðamaður ræddi við hana um lífið erlendis, ævintýrin, hversdagsleikann og fleira.