Það er ekki mikilla breytinga að vænta í veðri í dag, segir veðurfræðingur Veðurstofunnar í pistli sínum um veðrið í dag og næstu daga. Það dregur þó úr rigningu vestanlands undir kvöld en hvessir í staðinn. Bílstjórar á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindum ættu að hafa varann á norðvestantil. Þar er spáð allhvössum vindstrengjum í nótt og á morgun sem geta verið varasamir ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindum. Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu og rigning eða súld með köflum, einkum vestanlands, en skýjað og úrkomulítið á austanverðu landinu í dag. Gengur í suðaustan átta til fimmtán vestanlands og dregur úr vætu í kvöld, en hægari og léttir til norðan- og austanlands. Hiti tíu til 23 stig, hlýjast á Austurlandi.Suðlæg átt, átta til átján m