Hátt í 160 þúsund hylltu norska landsliðið við konungshöllina

Mannhaf á Karls Jóhanns-götu í miðborg Óslóar í gær.EPA / Trond R. TeigenÓslóarlögreglan segir að 157 þúsund manns hafi verið samankomnir fyrir framan konungshöllina í gærkvöld til að fagna heimkomu norska karlalandsliðsins í fótbolta.Þar tók Hákon krónprins þátt í hátíðarhöldunum. Hann sló taktinn þegar leikmenn liðsins og stuðningsmenn réru af krafti. Róðurinn var einkennismerki norska liðsins og stuðningsmanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta.Þrátt fyrir 2-1 tap gegn Englandi í framlengdum leik á laugardag var leikmönnum norska liðsins fagnað eins og þjóðhetjum í gær. Liðið komst í átta liða úrslit á mótinu. Það er besti árangur karlaliðsins á HM frá upphafi.
Hátt í 160 þúsund hylltu norska landsliðið við konungshöllina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd