Japan orðið að greni rússneskra njósnara

Yfirvöld í Japan hafa viðurkennt að þau þurfi að sporna gegn viðveru erlendra njósnara í landinu. New York Times greindi frá því um helgina að Rússar hefðu gert Japan að „greni njósnara“.Niðurstaða rannsóknar blaðamanna New York Times var birt á sunnudag. Þar segir að stjórnvöld í Moskvu nýti sér lina njósnalöggjöf í Japan og að landið sé orðið að miðstöð fyrir söfnun leyniþjónustugagna. Þá útvegi Rússar mikið af búnaði í landinu sem nýtist hernum í stríðinu í Úkraínu. 90% AF FLUGSKEYTUM OG DRÓNUM RÚSSA INNIHALDA ÍHLUTI FRÁ JAPAN „Við viðurkennum að samhliða síbreytilegu ástandi öryggismála eykst þörfin fyrir að veita erlendri njósnastarfsemi viðspyrnu, svo sem söfnun viðkvæmra upplýsinga, sem ógnar þjóðaröryggi Japans,“ sagði Minoru Kihara, talsmaður japönsku ríkisstjórnarinnar, í gær.
Japan orðið að greni rússneskra njósnara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd