Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hét því í dag að leggja Alþjóðaglæpadómstólinn (e. International Criminal Court, ICC) niður.Rubio hefur sakað dómstólinn um að heyja stríð gegn Bandaríkjunum með beitingu alþjóðalaga. Framkvæmdastjóri mannréttindasamtaka gefur ekkert fyrir ásakanir utanríkisráðherrans. RÍKISSTJÓRN TRUMPS HEFUR LENGI GAGNRÝNT DÓMSTÓLINN Andstaða bandarískra stjórnvalda við Alþjóðaglæpadómstólinn nær aftur til fyrra kjörtímabils Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, að því er fram kemur í frétt CNN. Þá hóf dómstóllinn rannsókn á meintum stríðsglæpum bandarískra hermanna í Afganistan.Á yfirstandandi kjörtímabili Trumps hafa bandarísk stjórnvöld beitt embættismenn dómstólsins refsiaðgerðum vegna rannsókna þeirra á aðgerðum Bandaríkjanna og Ísraels.Bandarísk stjórnvö