Einn áhafnarmeðlimur lést og átta aðrir særðust þegar Íransher skaut eldflaugum á tvö olíuskip frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Hormússundi.Varnarmálaráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna segir á X að árásin hafi átt sér stað á suðurleið Hormuzsunds, innan landhelgi Óman. Sá sem lést var indverskur ríkisborgari og fjórir þeirra sem særðust eru sagðir alvarlega slasaðir.Eldar kviknuðu um borð í báðum skipunum eftir árásina en yfirvöld segja að tekist hafi að ná tökum á þeim.Ráðuneytið sakar Íran um árásina og segir hana alvarlegt brot á alþjóðalögum. Það segir að Sameinuðu arabísku furstadæmin áskilji sér rétt til að bregðast við og grípa til nauðsynlegra aðgerða til að verja fullveldi sitt og öryggi.