Sprengingar heyrðust í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, skömmu eftir að úkraínski flugherinn varaði við því að eldflaugar væru á leið í átt að borginni. Loftvarnakerfi voru virkjuð til að reyna að verjast árásinni sem er ein af mörgum sem Rússar hafa gert á höfuðborgina á undanförnum vikum.Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, greindi frá því á samfélagsmiðlinum Telegram að rússneski herinn hefði ráðist á borgina með eldflaugum og hvatti íbúa til að halda sig í loftvarnabyrgjum meðan hættan stæði yfir.Eldar kviknuðu í Holosiivsky-hverfinu í suðurhluta Kænugarðs eftir sprenginguna. Ekki hefur verið greint frá mannfalli eða umfangi tjónsins. Loftvarnaflautur höfðu farið í gang skömmu áður en röð sprenginga heyrðist víðs vegar um borgina.Fyrr í dag funduðu þjóðarleiðtogar í bandalagi hinna v